Við hjá Sportsól bjóðum upp á nútímalega hágæða ljósabekki sem eru útbúnir nýjustu tækni. Til að tryggja sem besta upplifun fyrir okkar viðskiptavini skiptum við um perur í bekkjunum oftar en framleiðendur mæla með.
Ef þú ert að koma í ljós eftir langt hlé eða hefur lítið verið úti í sólinni mælum við með að byrja rólega, taka styttri tíma og minnka ljósstyrkinn í bekknum. Einnig bjóðum við upp á hágæða krem sem gefa húðinni góðan raka og hjálpa til við að hámarka árangur ljósatímans.
Við leggjum mikla áherslu á hreinlæti og góða þjónustu. Gestum okkar stendur til boða hrein og notaleg sturtuaðstaða ásamt fríu handklæði til afnota.




